Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
-
Endurbætur hitaveitu í Aðaldal og Kinn
Almennt - miðvikudagur 16.maí.12 08:58 - Guðrún Erla Jónsdóttir - Lestrar 2Starfsmenn Orkuveitu Húsavíkur vinna núna að því að endurnýja 90mm PE lögn fyrir DN100 stállögn frá tengibrunni við Heiðargarð og fram yfir heimtaug við Haga, um 1500m. langur kafli. Nú er búið að sjóða saman á bilinu 80-90% röra en verkið er í biðstöðu vegna veðurs. Þegar veður batnar verður lokið við að sjóða saman rör og setja krumphólka. Þessari aðgerð er ætlað að tryggja nægan vantsþrýsting á bæjum á kaflanum frá Heiðargarði og að Haga. Þetta er fyrri áfanginn af tveimur í því skyni að bæta vatnsþrýsting á svæðinu. Seinni áfanginn, sem vonir standa til að hægt verði að fara í að ári, verður fólginn í því að skipta út lögn frá Haga og að tengibrunni á gatnamótum við Ytra Fjall en með því verður hægt að hækka þrýsting alla leið í Lindahlíð.
-
Borhola við sjúkrahús
Almennt - föstudagur 11.maí.12 09:05 - Guðrún Erla Jónsdóttir - Lestrar 14Eins og áður hefur verið greint frá er verið að gera dæluprófanir í Auðbrekku, borholu milli sjúkrahúss og fótboltavallar. Tilgangurinn er sá að meta afköst holunnar, hitastig ofl.
Dælan var sett niður þann 27. apríl og byrjað að dæla samdægurs. Fóðringin í holunni er 21 metri og dælan er á 20,5 metra dýpi. Tíðnibreytir er notaður til að stýra afköstum dælu, þannig að hægt er að sjá hvernig vatnshæðin í holunni breytist við mismunandi rennsli. Hitastigið á vatninu er um 42,8°C
Lesa meira
-
Verið að prófa borholu við sjúkrahús
Almennt - miðvikudagur 25.apr.12 15:45 - Guðrún Erla Jónsdóttir - Lestrar 38Starfsmenn Orkuveitu Húsavíkur hafa unnið að því síðustu daga að undirbúa dælingu úr borholu sem staðsett er milli sjúkrahúss og fótboltavallar. Tilgangurinn er sá að prófa dælingu úr holunni, sjá hvernig hún bregst við.

